Nýráðinn verkefnastjóri Þróunarsamvinnustofnunar, staðsettur í Malaví, hefur ekki búið í Afríku, hefur ekki formlega menntun í þróunarmálum né hefur hann starfað í geiranum. Þrátt fyrir þessa vankanta var Guðmundur Rúnar Árnason, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og fulltrúi Samfylkingarinnar, talinn hæfastur í hópi tæplega áttatíu umsækjenda um stöðuna.
Fyrirtækið Capacent fór með ráðgjöf við ráðningu Guðmundar en auk þess voru Engilbert Guðmundsson framkvæmdastjóri stofnunarinnar og María Erla Marelsdóttir sviðsstjóri Þróunarsviðs Utanríkisráðuneytisins með í ráðum. Þá mun einnig hafa verið leitað til Vilhjálms Wiium, umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunarinnar í Malaví. DV hefur heimildir fyrir því að ráðningin sé ekki á forsendum Þróunarsamvinnustofnunar og að innan stofnunarinnar og meðal þeirra sem starfa við þróunarmál hér á landi sé veruleg ólga vegna hennar. Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar þvertekur fyrir þrýsting ofan úr ráðuneyti. Traustar heimildir blaðsins herma að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi með ráðningu Guðmundar að gera.
DV leitaði eftir viðbrögðum frá Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra en fékk ekki. Þá var gerð tilraun til að ræða við Guðmund sjálfan en það tókst ekki heldur.
Áskrifendur DV geta lesið umfjöllun blaðsins í heild með því að smella á meira.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013