„Þetta er eilíf barátta við þessa skotsóða, þetta eru örfáir menn sem haga sér svona,“ segir Örn Þorleifsson, bóndi og eigandi farfuglaheimilisins Húseyjar á Austurlandi. Veiðimenn notuðu flugvél á fimmtudagskvöldið til þess að hrekja hóp hreindýra frá jörð Arnar og á stað þar sem þeir gátu skotið þau. „Þetta er bara svo ljótt,“ ítrekar Örn.
Hann leyfir ekki veiðar á hreindýrum á sinni jörð og því er ólöglegt að skjóta þau þar. Venjulega leita þau af sjálfsdáðum út fyrir jörðina í september en Örn segir veiðimennina hafa verið óþreyjufulla og æsta í að ná í tarfana, sem hafi verið einstaklega stórir og glæsilegir. Hann vill halda verndarhendi yfir dýrunum og ferðamenn eru almennt mjög hrifnir af þeim. „Þetta er spurning um náttúruvernd og svo er hreindýrið aðalsmerki ferðaþjónustunnar hér,“ segir Örn um málið.
Hann segir að flugvélinni hafi ítrekað verið steypt niður til þess að reka dýrin af jörð hans og þangað sem þau væru löggilt bráð. Lögreglan á Egilsstöðum sagðist í samtali við DV þekkja til málsins þó að það hafi ekki verið kært til hennar formlega.
Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni með því að smella á „Meira“.


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013