Loksins mega konur hjóla!

Konum í Norður Kóreu var bannað að hjóla eftir að dóttir herforingja lenti í hjólreiðaslysi

Loksins mega konur hjóla! Einhvernveginn svona gætu fyrirsagnir Norður-Kóreskra fjölmiðla hljómað um þessar mundir en yfirvöld þar í landi hafa aflétt ansi undarlegu banni sem fyrrverandi einræðisherra landsins, Kim Jong-Il, kom á á tíunda áratug liðinnar aldar. Þá bannaði einræðisherrann konum að hjóla á þéttbýlissvæðum, til dæmis í höfuðborginni Pyongyang.

Bannið var sett á eftir að dóttir háttsetts herforingja lést í kjölfar hjólreiðaslyss. Konur sem hlíttu ekki banninu áttu á hættu að fá sekt og við endurtekin brot gátu þær átt von á því að reiðhjól þeirra yrði gert upptækt. Nú hefur banninu verið aflétt við mikla „kátínu“ kvenna í landinu samkvæmt ríkisfjölmiðli Norður-Kóreu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.