Björgunarsveitamenn á Austurlandi leituðu í kvöld franskrar konu sem skilaði sér ekki á tilsettum tíma úr göngu. Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að hún hafi fundist rétt eftir klukkan hálf tíu.
Starfsfólk gistiheimilis, þar sem konan var gestur, hafði samband við lögreglu í kvöld og tilkynnti að hennar væri saknað. Konan hugðist ganga Hvannagil í Lóni og fór frá gistiheimilinu klukkan 10:00 í morgun en um 4-5 tíma tekur að ganga þessa leið.
Björgunarsveitir frá Höfn og Djúpavogi voru kallaðar til leitarinnar, sem og leitarhundateymi af Austurlandi og fundu þær konuna rétt eftir klukkan hálf tíu. Hún var þá á göngu í Hvannagilinu og hafði villst af leið en var komin á slóðann aftur þegar hún fannst. Amaði ekkert að henni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013