Íbúar Asíu þeir ríkustu 2050

Íbúar Singapúr verða þeir ríkustu í heimi

Íbúar borgríkisins Singapúr verða þeir ríkustu í heimi árið 2050. Þetta er samkvæmt niðurstöðum nýrrar skýrslu, Wealth Report, sem Knight-Frank og Citi Private Bank gáfu út á dögunum. Í skýrslunni er spáð í spilin um það sem koma skal á næstu árum og áratugum í efnahagsmálum heimsins. Í skýrslunni kemur fram að íbúar Asíu verði þeir ríkustu í heimi árið 2050.

Í skýrslunni er því spáð að tekjur á hvern íbúa í Singapúr árið 2050 verði 137.710 dalir, eða 16,5 milljónir króna. Í næstu sætum á eftir koma Hong Kong, Taívan og Suður-Kórea. Bandaríkin eru eina vestræna ríkið á topp 5 en þau sitja í fimmta sæti með rétt rúmlega hundrað þúsund Bandaríkjadali, eða tæplega tólf milljónir króna. Á eftir Bandaríkjunum koma Sádi-Arabía, Kanada, Bretland, Sviss og Austurríki.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.