Hæstiréttur Íslands hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir margdæmdum manni sem grunaður er um fjölmörg ofbeldis- og fíkniefnabrot. Maðurinn mun sitja í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna til 11. september næstkomandi. Maðurinn var gripinn við það að brjótast inn í hús þann 14. ágúst og reyndi hann að flýja lögreglumenn. Hann var hlaupinn uppi en veitti mikinn mótþróa við handtöku. Reyndi hann ítrekað að sparka í lögreglumenn og hótaði hann þeim lífláti. Þegar lögreglan var að yfirbuga manninn hlaut hann blóðnasir og hóf hann að hrækja blóði á lögreglumenn.
Í kjölfarið var óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir manninum úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. ágúst er sannkallaður hryllingslestur. Þar eru talin eru upp fjöldi annarra brota sem maðurinn er „sterklega grunaður um“ að hafa framið síðustu mánuði. Mörg þeirra eru afar hrottafengin. Og hann virðist ekki vera hrifinn af því þegar lögreglumenn handtaka hann fyrir afbrotin því í fjölmörg skipti er hann kærður fyrir árásir á lögreglumenn.
Samkvæmt dómskjölum er maðurinn, svo eitthvað sé nefnt, grunaður um að hafa:
– ráðist á sambýlismann barnsmóður sinnar. Rifið af honum gleraugu, brotið og kastað í ruslið.
– ráðist á afgreiðslustúlku í myndbandaleigu, grípa í handlegg hennar og ýta henni upp við vegg og ráðast svo á lögreglumenn sem komu til að handtaka hann. Hrækja á þá og hóta þeim.
–ráðist á öryggisvörð í Hagkaup Skeifunni. Vörðurinn var að vísa honum úr versluninni þegar maðurinn brást við með að kýla og sparka frá sér, þá lagði hann til öryggisvarðarins með kústskafti. Vörðurinn þumalputtabrotnaði, tognaði í brjósthrygg, lendhrygg og hlaut fleiri áverka við árásina.
– Í febrúar síðastliðnum hafði hann verið handtekinn og var hann í haldi á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. Þar kýldi hann í gegnum rúðu sem aðskilur fangagang og salernisaðstöðu með þeim afleiðingum að glerbrot fór í auga lögreglumanns sem þurfti að gangast undir aðgerð.
– í maí síðastliðnum ráðist á unnustu sína, kýlt hana í andlitið og slegið hana, kastað henni utan í vegg, tekið um höfuð hennar og slegið því ítrekað utan í vegg þar til hún missti meðvitund. Samkvæmt dómskjölum lýsti konan unnusta sínum sem „ofbeldisfullum manni sem m.a. hafi bannað henni að eiga vini og farsíma og ekki leyft henni að eiga samskipti við fólk nema hann væri viðstaddur. Hún sagðist einnig við skýrslutöku hjá lögreglu hafa reynt að fara frá honum en þá hafi kærði áreitt fjölskyldu hennar linnulaust uns hann hafi fundið hana og neytt síðan með valdi til að koma aftur heim með sér. Hún sagði kærða ítrekað hafa beitt sig ofbeldi í sambandi þeirra og m.a. ökkla-, putta-, nef- og kinnbeinsbrotið hana. Einnig sagði hún kærða hafa skorið hana með hníf. Unnustan hafi lagt kæruna fram þann 19. maí sl. en dregið hana til baka, símleiðis, tveimur dögum síðar.“
Þessa sömu unnustu er hann einnig sakaður um að hafa ráðist á aftur, í öðru aðskildu máli. Þar reif hann gat á íþróttabuxur hennar, setti fingur upp í leggöng hennar og kallaði hana hóru. Hrinti hann henni síðan í gólfið þar sem hann sparkaði ítrekað í hana og tók hana loks hálstaki og sló hana í framan. Unnustan náði að flýja til nágranna og hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum.
Eru þá ekki meðtalin fíkniefnabrot, innbrot, hylmingarmál og fleira sem talið er upp í gæsluvarðhaldsúrskurðinum.
Fjármagnar dópneyslu með afbrotum
Þar segir að maðurinn sé margdæmdur afbrotamaður og að brotaferill hans nái aftur til ársins 1994.
Er hann sagður atvinnulaus á örorkubótum og að það virðist sem „hann framfleyti sér og fjármagni vímuefnafíkn sína að einhverju leyti með afbrotum,“ segir í dómskjölum. Lögreglustjórinn segir að það varði rannsóknarhagsmuni að halda manninum sem sé líklegur til að spilla rannsóknum þessara mála. Hafa nú héraðs- og hæstiréttur staðfest kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari lýsingar má lesa í úrskurði Hæstaréttar.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013