Lést eftir fall fram af svölum

Banaslys í Kópavogi

Maðurinn sem fluttur var alvarlega slasaður á slysadeild Landspítalans í morgun eftir að hafa fallið fram af svölum blokkar í Lautasmára í Kópavogi er látinn.

Þetta staðfestir læknir á slysadeildinni í samtali við DV í dag.

Vísir.is greindi frá því í morgun að talið væri að fallið hafi verið af sjöttu hæð.

Lögreglan rannsakar nú tildrög slyssins en engar frekari upplýsingar um gang hennar var að fá hjá lögreglu fyrr í dag, enda hún á algjöru frumstigi.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.