„Ég hef gengið í gegnum ýmislegt sem ég hafði aldrei unnið neitt úr. Ég fór nýlega að vinna í sjálfri mér og ákvað strax að gera eitthvað sem gæti hjálpað fleirum,“ segir Sunna Rós Baxter sem nýverið stofnaðiFacebook-hópinn Bjarta ljósið , fyrir fólk sem hefur einangrað sig félagslega og langar til að kynnast nýju fólki.
Hugmyndin kviknaði þegar Sunna Rós var sjálf í þeim sporum og fannst vanta einhvern vettvang þar sem hún gæti hitt fólk sem er að upplifa svipaða hluti og gæti veitt hvert öðru félagsskap og stuðning. Á þeim tveimur mánuðum sem hópurinn hefur verið til hafa um 50 manns skráð sig og segir Sunna viðbrögðin hafa verið vonum framar.
Vill ekki draga aðra niður
Sunnu Rós fannst fá úrræði í boði þar sem hún gæti tengst öðru fólki á jafningjagrundvelli. „Mér fannst eins og ég þyrfti að finna upp hjólið. Ég vissi ekkert hvert ég ætti að leita. Þegar manni líður illa þá finnst manni stundum óþægilegt að vera í kringum vini sína og fólk sem er að gera eitthvað í lífinu og líður vel. Manni líður eins og maður sé að draga alla niður og finnst maður ekki alveg beint passa inn í hópinn. Ég hugsaði að það væri kannski sniðugt að búa til hóp þar sem öllum fyndist þeir vera velkomnir. Að geta þá farið út með fólki án þess að þurfa að þykjast vera rosa hress og falla inn í hóp sem því finnst það kannski ekki passa inn í akkúrat núna.“
Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni með því að smella á „Meira“.


Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi