Guðlaugur Þór: „Kemur ekki á óvart“

Þingmaður um ákæru á hendur fyrrverandi forstjóra FME

„Það kemur ekki á óvart því þarna var aflað gagna með ólöglegum hætti,“ sagði þingmaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson í Bítinu á Bylgjunni í morgun aðspurður um ákæruna á hendur Gunnari Andersen og fyrrverandi starfsmanni Landsbankans sem Fréttablaðið greinir frá í dag.

Guðlaugur sagði það kaldhæðnislegt að þetta mál hafi orðið til þess að fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins yrði ákærður fyrir meintan þátt sinn í að leka gögnum um þingmanninn. Lekinn og þær upplýsingar sem DV fjallaði um í frétt sinni hafi verið sársaukalaus fyrir hann þar sem umræddar upplýsingar hafi ekki verið neitt leyndarmál, hafi orðið til þess.

„Ég hef áhyggjur af því að svona mál geti komið upp. Og það er ýmislegt sem bendir til þess að þetta sé ekki eina mál sinnar tegundar. Það er slæmt ef við getum ekki treyst yfirvöldum, eða eins og í þessu tilfelli, fjármálalöggæslunni,“ sagði Guðlaugur Þór í útvarpsviðtalinu. Hann bætti við að hann teldi að FME hefði verið fljótt að afgreiða mál Gunnars sem einstakt og lýst því að hann teldi eftirlitið þurfa að skoða sín mál vel til að vera vissir um að svona hafi ekki komið fram áður.

DV greindi frá því í lok febrúar að eignarhaldsfélag í eigu Guðlaugs Þórs, Bogmaðurinn ehf., hefði fengið greiddar tæpar 33 milljónir króna fyrir tryggingamiðlunina frá Landsbanka Íslands í júní 2003. Guðlaugur Þór, sem var borgarfulltrúi á þessum tíma, sagðist hafa keypt tryggingamiðlunina með skammtímaláni frá Búnaðarbankanum, bankanum sem hann vann hjá þar til á vormánuðum 2003. Guðlaugur Þór hafði verið kjörinn á þing í fyrsta skipti einum mánuði áður.

Málið er allt hið athyglisverðasta því ekki má gleyma að Gunnar Andersen lét sjálfur þau orð falla um Guðlaug Þór í Fréttablaðinu í mars síðastliðnum að hann hefði öruggar heimildir fyrir því að þingmaðurinn hefði lekið göngum um hann til Kastljóssins. Þau göng voru undirstaðan í umfjöllun þáttarins um Gunnar, sem þá var forstjóri Fjármálaeftirlitsins, og snéru að meintri aðkomu hans að aflandsfélögum. Þau gögn hafi verið fengin úr Landsbankanum að sögn Gunnars.

Sjá einnig:

Ákærðir fyrir að leka gögnum um Guðlaug


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.