„Já, ég er bara nýfluttur,“ segir Bjarni Ármannsson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Glitnis, í samtali við DV. Bjarni flutti nýlega með fjölskyldu sína inn í glæsilegt hús sem staðsett er í Frederiksberg í Kaupmannahöfn.
Bjarni vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar DV náði tali af honum. Þá vildi hann ekkert tjá sig um það hvort flutningarnir tengdust því að hann hefði fengið nýtt starf í Kaupmannahöfn.
Húsið sem er glæsilegt í alla staði er staðsett í næsta nágrenni við dýragarðinn. Samkvæmt upplýsingum DV eru fimm íbúðir í húsinu en ekki er ljóst hvort Bjarni og fjölskylda deili húsinu með fleirum.
Að því er DV kemst næst hélt Bjarni til í gamla húsinu sínu við Bakkavör á Seltjarnarnesi allt fram að flutningunum til Kaupmannahafnar.
Áskrifendur geta lesið fréttina í heild sinni með því að smella á „Meira“.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013