Stundaði hópkynlíf með nemendum sínum

Brittni Nicole Colleps misnotaði fimm unglingspilta

Hin 28 ára gamla Brittni Nicole Colleps, enskukennari við gagnfræðaskóla í bænum Kennedale, í Texas í Bandaríkjunum var á dögunum sakfelld fyrir að hafa stundað kynlíf með fimm nemendum sínum og fyrir að hafa stundað hópkynlíf með sumum þeirra. Colleps var gert að sæta fimm ára fangavist fyrir brotin, en hún þótti hafa misnotað traust drengjanna og misnotað þá kynferðislega.

Þrátt fyrir að drengirnir væru orðnir átján ára var ákveðið að ákæra Colleps, en lög í Texas kveða á um að hvort sem nemendur eru orðnir átján ára eða ekki er það glæpur ef kennari á í ástarsambandi við nemanda. Þykir Colleps í raun vera heppin þar sem kviðdómur dæmdi hana til lágmarksrefsingar, en brot af þessu tagi geta þýtt 20 ára fangelsi fyrir hvert brot fyrir sig.

Colleps, sem er gift og þriggja barna móðir, hafði starfað í stuttan tíma í gagnfræðaskólanum þegar hún fór að misnota drengina. Upp komst um ástarsambönd hennar við drengina þegar myndband af henni að stunda kynlíf með nokkrum drengjanna var sett á internetið. Colleps gekk sjálf inn á lögreglustöðina í Kennedale og játaði brot sín í kjölfarið og greindi frá því að hún hefði boðið nemendum sínum að koma á heimili hennar. Á tveggja mánaða tímabili á síðasta ári komu fimm drengir heim til hennar þar sem þau stunduðu kynlíf.

Þrír gamlir nemendur hennar, sem báru vitni í réttarhaldinu, kváðust ekki líta á sjálfa sig sem fórnarlömb heldur sögðust hafa verið ástfangnir af kennaranum sínum. Tveir drengjanna sögðu frá því að sambandið hefði hafist með smáskilaboðum sem kennarinn og nemendurnir sendu sín á milli. Þau urðu fljótlega kynferðisleg. Þá lýsti einn nemendanna frá því hvernig hann stundaði hópkynlíf ásamt Colleps og öðrum nemendum en það var hann sem tók upp myndband af einni kynlífsathöfninni á farsímann sinn.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.