„Ég á ekki neitt – nema bílinn. Ef ég missi hann þá er líf mitt bara búið,“ segir hin sextuga Særún Stefánsdóttir, óvinnufær öryrki, sem í tæplega tvo mánuði hefur þurft að búa í bílnum sínum sökum fátæktar og bætir við – grátandi: „Ég sef illa og er með verki um allan líkamann. Á daginn veit ég ekkert hvað ég á að gera af mér; hangi bara í bílnum og reyni að vera ósýnileg. Ég vona alltaf að enginn sjái mig; enginn taki eftir mér.“ Særún gerir stutt hlé á máli sínu til að ná sér og heldur síðan áfram að lýsa fyrir blaðamanni ömurleika bílabúsetunnar.
DV fjallar um málið í dag en þar kemur fram að Særún eigi hús á Raufarhöfn sem hún fékk í arf frá foreldrum sínum. Þar vill hún hins vegar ekki búa. „Ég á þessa skelfingu (húsið), sem er líkkista í mínum huga. Ég gæti kannski farið þangað til að vera einhvers staðar – og beðið eftir því að líkkistulokið verði sett ofan á.“
Frekari umfjöllun um málið má lesa í DV í dag

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013