Alvarlegt atvik: Lasergeisla beint að flugvél

Vélin var að lenda – Getur verið stórhættulegt

Lögreglunni á Suðurnesjum barst á föstudag tilkynning þess efnis að lasergeisla hefði verið beint að flugvél sem var að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli. Ekki er vitað hvaðan geislinn kom né hver var þar að verki.

Í tilkynningu lögreglu segir að blessunarlega hafi ekki orðið óhapp vegna þessa athæfis sem litið er alvarlegum augum og lögreglan mun rannsaka málið.

Svona mál hafa áður komið upp á Íslandi, meðal annars í nóvember 2010 þegar lasergeisla var beint að stjórnklefa Fokker-flugvélar Flugfélags Íslands þegar hún var í aðflugi að Akureyrarflugvelli.

Þá hafa mál sem þessi komið upp erlendis. Í Ástralíu var til skoðunar fyrir um fjórum árum síðan að banna lasergeislapenna, sem geta verið mjög öflugir margir hverjir. Þá höfðu komið upp mörg atvik þar sem flugmenn farþegaflugvéla voru truflaðir með lasergeislum og þurftu að hætta við lendingu eða breyta fyrirvaralítið um stefnu. Allar truflanir sem þessar eru því stórhættulegar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.