Við vörum viðkvæma við athugasemdum sem fylgja þessari frétt
„Eyrún Mist Kristinsdóttir, tussu mella þvílík tík þú ert hóran í Reykjavík.“ Í þessum anda eru athugasemdir sem birtust á Facebook síðastliðinn þriðjudag og varða unga konu sem í gamni skrifaði athugasemd við stöðuuppfærslu.
Mörg andsvörin ganga enn lengra og hægt er að sjá þær allar hér til hliðar.
Konan sem um ræðir er Eyrún Mist Kristinsdóttir, sem í samtali við DV.is, segir að sér hafi verið verulega brugðið að sjá talað um sig á þennan hátt, sérstaklega í ljósi þess að flestir þeir sem skrifa athugasemdirnar eru piltar sem hún þekkir ekki og hefur aldrei hitt.
„Þetta er kannski flott rím, en þetta er ógeðslegt,“ segir Eyrún í samtali við DV.is. „Ég ætla að fara í hádeginu og kæra þetta til lögreglunnar.“
Einkahúmor
Forsaga málsins er sú að Eyrún skrifaði athugasemd að stöðuuppfærslu hjá fyrrverandi kærasta sínum. Hann var á leið erlendis með vinum sínum og Eyrún svarar honum, að hennar sögn með brandara sem átti sér langa sögu þeirra í milli. Eyrún vissi með hverjum hann var að fara og á milli þeirra hafði stundum verið gantast með ímyndaða vini hans. Eyrún hafði því skrifað, að hennar sögn í gríni: „Not sure if imaginary friends or imaginary friends.“
Þessu taka félagar hans hinsvegar ansi óstinnt upp og ráðast á hana með svívirðingum og dónaskap.
„Ég þekki ekki þetta fatlaða gerpi Eyrúnu,“ skrifar einn og spyr hana svo hvers vegna hún sé enn á lífi „litla slysabarnið“.
Annar leggur til að Eyrún helli yfir sig bensíni og kveiki í sér.
Allar athugasemdirnar eru á þennan veg; ráðast á Eyrúnu, fjölskyldu hennar og gert er grín að fötlun hennar. Eyrún er tuttugu og fimm prósent lömuð á hægri hlið líkamans eftir heilablóðfall í barnæsku.
Ókunnugir
Eins og áður sagði þekkir Eyrún piltana ekki og að hennar sögn hafa þeir því enga ástæðu til að ráðast svo að henni. „Ég þekki tvo þeirra, en hina þekki ég ekki,“ segir Eyrún sem bendir á að ekkert illt sé á milli hennar og fyrrverandi kærasta hennar svo hún viti til. Þess vegna komi þetta henni sérstaklega á óvart og sé særandi.
Báðust afsökunar
Þess ber að geta að sumir, en þó ekki allir, piltanna hafa beðið Eyrúnu afsökunar á framkomu sinni og segja að áfengi hafi haft þar mikil áhrif á skrif sín.
Segjast þeir hafa verið „blindfullir“ og einn þeirra segist sjálfur ekki hafa skrifað henni, heldur hafi vinirnir gert það í hans nafni.
Eyrún er engu að síður harðákveðin í því að tilkynna lögreglunni um málið og ætlar að gera það í dag.
Segir hún ummælin of niðrandi og rætin til þess að hægt sé að gleyma þeim svo glatt; þau séu einfaldlega óafsakanleg. Það ber einnig að geta þess að þrátt fyrir afsökunarbeiðnirnar eru athugasemdirnar enn á Facebook.
Neteinelti
Í þessu tilfelli virðist hafa myndast mikill múgæsingur og en það sem vekur helst athygli er að piltarnir skrifa allir undir fullu nafni og mynd. Eyrún segist aldrei áður hafa orðið fyrir slíkum árásum.
Einelti á internetinu er vaxandi vandi á netöld, en slíkt hefur þótt sérstaklega varhugavert meðal ungmenna og unglinga. Hér er þó um að ræða fullorðið fólk, sem er orðið átján ára eða eldra.
Skemmst er frá því að segja að DV hefur undanfarið fjallað um svokallaðar „Gossip girl“ síður þar sem unglingar keppast við að senda inn slúðurfréttir af hvort öðru og ljóstra upp um leyndarmál annarra unglinga. Oft hefur verið rætt um einelti á íslenskum spjallsíðum líkt og Bland.is eða í athugasemdakerfum. Meðal ungmenna hafa oft komið fram eineltisvandamál á síðum eins og Formspring.
SAFT, er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi. Saft stendur fyrir Samfélag, fjölskylda og tækni en samtökin hafa sett fram netorðin fimm, en þar er bent á að hegðun á netinu ætti að endurspegla það hvernig fólk vill láta koma fram við sjálft sig.
Netorðin fimm
1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013