„Nornaveiðunum verður að linna“

Assange þakkaði fyrir sig og fordæmdi bandarísk stjórnvöld

Julian Assange, forsprakki vefsíðunnar WikiLeaks hélt ávarp á svölum sendiráðs Ekvador fyrir stuttri stund þar sem hann lofsöng stjórnvöld í Ekvador og þakkaði þeim fyrir að hafa veitt sér hæli í landinu. Assange, eins og margir vita, getur ekki yfirgefið sendiráð Ekvador þar sem bresk stjórnvöld hafa hótað að hann verði handtekinn og framseldur til Svíþjóðar yfirgefi hann sendiráðið.

Hann hefur dvalið þar um tíma til þess að komast hjá því að verða framseldur til Svíþjóðar þar sem hann á yfir höfði sér kærur vegna kynferðisbrota.

Assange þakkaði fyrir stuðninginn og en sagði að nornaveiðum bandarískra yfirvalda yrði að ljúka. Það yrði að vera hægt að fletta ofan af spillingu án þess að vera hundeltur. Þá hvatti hann til þess að Bradley Manning, mannsins sem lak trúnaðargögnum Bandaríska hersins til WikiLeaks yrði sleppt úr haldi. Hann fordæmdi einnig fangelsisdóm yfir Pussy riot pönksveitinni.

Ræðu Assange má sjá í meðfylgjandi myndbandi


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.