Tveir drengir léku sér með eld við Fellaskóla

Mikill reykur í þaki skólans í gær.

Tveir drengir sáust leggja eld að Fellaskóla í gærkvöld, en RÚV greinir frá því að drengirnir séu 10-12 ára gamlir og hafi verið að kveikja í pappír við skólann um kvöldmatarleytið í gær. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn upp úr hálf sjö í gærkvöldi þegar tilkynnt var um að mikinn reyk legði frá húsinu, en engan sakaði. Einn var yfirheyrður vegna málsins í gær.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.