Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
17:33 › 18. ágúst 2012
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með sérstakt eftirlit með unglingadrykkju á Menningarnótt. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar.
Lögregla verður með göngueftirlit og mun skipta sér sérstaklega af áfengisdrykkju ungmenna undir lögaldri. Foreldrar eru beðnir um að muna eftir útivistartímum og gæta að ungmennunum.
„Skemmtum okkur vel á Menningarnótt,“ segir ennfremur á síðunni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum