Rúmlega 41 milljón safnaðist í hlaupinu

Efstu keppendur hæstánægðir

Reykjavíkurmaraþonið gekk að vonum mjög vel en heildarsöfnun nemur nú um 41.654.000 krónum. Viktor Snær Sigurðsson, 12 ára, er nú efsti keppandinn en hann hefur safnað 1.592.000 krónum fyrir AHC samtökin. Viktor hleypur fyrir systur sína sem er með sjaldgæfan taugasjúkdóm sem kallast Alternating Hemiplegia of Childhood.

Að eigin sögn gekk Viktori mjög vel í hlaupinu en hann hljóp 10 kílómetra á sléttum klukkutíma. „Ég bjóst ekki alveg við svo stórri upphæð, ég hélt að ég myndi rétt ná hálfri milljón,“ segir Viktor í samtali við DV.

Bjarný Þorvarðardóttir fylgir fast á hæla Bjarna en hún hefur nú safnað 1.149.000 krónum fyrir Mænuskaðastofnun Íslands. Bjarný hleypur fyrir föður sinn sem er mænuskaddaður.

Í samtali við DV segir Bjarný að hlaupið hafi gengið vel, en hún hljóp 21 kílómetra. „Ég náði mínu markmiði sem var að vera undir tveim tímum og er bara sátt við það.“

Aðspurð um hvort hún hafi búist við svo stórri upphæð segir Bjarný: „Nei ég get ekki sagt það en ég vissi alveg að ég fengi góðan stuðning. En þetta kom skemmtilega á óvart, ég get ekki sagt annað en að ég sé hæstánægð.“

Fram kemur á vef Reykjavíkurmaraþons að á eftir komi fjölskylda sem hefur safnað 1.126.867 krónum fyrir Kraft – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Í áheitinu kemur fram að fjölskyldan hafi hlaupið 10 kílómetra fyrir ættingja sem greindist fyrir skömmu í fjórða skipti með æxli í höfði. Ekki náðist í aðstandendur við gerð fréttarinnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.