Húsmæður sýna Pussy Riot stuðning

„Við hefðum getað skrifað Pútín bréf en ég efast nú reyndar um að hann hefði lesið það“

„Við hefðum getað skrifað Pútín bréf til þess að koma skilaboðum okkar áleiðis, en ég efast nú reyndar um að hann hefði lesið það,“ segir Matthildur Helgadóttir Jónudóttir í samtali við DV.is, en hún er ein af húsmæðrunum frá Ísafirði sem sýna pönksveitinni Pussy Riot stuðning sinn í verki.

Eins og sést á meðfylgjandi mynd eru húsmæðurnar ísfirsku að taka sér stuðningsstöðu með Pussy Riot með því að klæða sig upp eins og sveitin gerir. „Þetta er táknrænt og við ákváðum að fara þessa leið án þess að boða formlega til mótmæla,“ segir Matthildur. Þó aðdragandi þess að myndirnar væru teknar væri skammur lögðu þau sem að þeim stóðu sig fram við að gera þetta sem best og sem líkast því sem Pussy Riot gera sjálfar.

Fjölmargir hafa deilt myndunum á Facebook og hafa þær vakið mikla athygli. Þetta er sama leið og Pussy Riot velur til að auglýsa viðburði sína, en þær treysta á almenning og stuðningsmenn sína til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri.

En sjón er sögu ríkari og hér má sjá húsmæðurnar, auk barnabarns Matthildar, sýna Pussy Riot stuðning.

Eins og fram kom í fréttum í gær voru þrír meðlimir pönksveitarinnar dæmdir til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að hafa valdið óeirðum í rússneskri rétttrúnaðarkirkju, auk þess sem þær móðguðu Vladimir Pútín með verknaðinum. Dómurinn hefur vakið heimsathygli og hafa rússnesk yfirvöld verið harðlega gagnrýnd fyrir að brjóta á mannréttindum og tjáningarfrelsi Pussy riot meðlimanna.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.