Frönsk ferðakona sem hrapaði og meiddist á höfði norðvestur af Höfn í Hornafirði í dag er nú kominn á sjúkrahús í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Konan var á gangi á Hoffeljökli þegar hún hrapaði um tíu metra við Geitafell. Konan hringdi í Neyðarlínu en vissi hins vegar ekki hvar hún væri nákvæmlega. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til leitar en björgunarsveitarmaður fann hana efst í Geitafelli.
Í tilkynningunni segir að erfitt hafi verið að komast að konunni og það hafi tekið björgunarsveitarmanninn um klukkutíma. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konuna og flutti hana á sjúkrahús í Rekjavík.
Þá eru björgunarsveitarmenn að ljúka við að bera konu niður úr Brynjudal í Hvalfirði og í sjúkrabíl en hún sneri sig á fæti fyrr í dag.

Hemmi Gunn fallinn frá