Egill hefur enn ekki kært stúlkuna

Seinni kæran hefur enn ekki verið afgreidd

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur engin kæra verið lögð fram á hendur stúlkunni sem kærði Egil Einarsson fyrir nauðgun á síðasta ári. Smugan greinir frá þessu, en þar kemur fram að kæran sem Egill kvaðst ákveðinn í að leggja fram hefði enn ekki ratað inn á borð lögreglu. Af þeim sökum hefur engin rannsókn farið fram á tildrögum ákærunnar líkt og Egill sagðist hafa óskað eftir.

„Ég hef einsett mér að komast til botns í þessu máli. Ég hef því lagt fram kæru á hendur stúlkunni og vinkonum hennar og óskað eftir lögreglurannsókn á tildrögum þess að ég var, ásamt unnustu minni, borinn röngum sökum um svívirðilegan glæp,“ sagði Egill í tilkynningu þegar greint var frá því að ríkissaksóknari hefði fellt niður málið gegn honum.

Smugan greinir einnig frá því að seinni kæran sem barst og varðaði Egil er ennþá hjá ríkissaksóknara og hefur því ekki verið vísað frá. Þetta staðfestir Guðjón Ólafur Jónsson lögmaður stúlknanna en vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.