Grunur um að hann sé eftirlýstur

Framvísaði fölsku vegabréfi í Leifsstöð

Í gær var maður handtekinn í Leifsstöð fyrir að framvísa vegabréfi sem hann á ekki. Maðurinn átti bókað flug til Kanada en er hann kom í vegabréfaskoðun í flugstöðinni framvísaði hann norsku vegabréfi sem grunsemdir vöknuðu um að hann væri ekki lögmætur handhafi að.

Við eftirgrennslan, sem meðal annars fól í sér andlitssamanburð, kom í ljós að sá grunur var rökréttur. Maðurinn er nú til rannsóknar. Meðal annars er unnið að því að reyna að staðfesta hver maðurinn er sem og að athuga hvort hann kunni að vera eftirlýstur einhversstaðar.

Þetta er tuttugasta og fyrsta skilríkjafölsunarmálið sem upp kemur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á þessu ári. Á sama tíma í fyrra höfðu fimmtán skilríkjafölsunarmál komið upp í flugstöðinni.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.