Allar stöðvar slökkviliðsins hafa verið ræstar út vegna elds í þaki íþróttahússins í Fellaskóla. Mikinn reyk leggur frá þakinu og virðist eldurinn vera fremur stór.
Ekki liggur meira fyrir um málið að svo stöddu.