„Einstaklega stórmannlegt“ að skella skuld á fangaverði

Segir verjanda Barkar hafa fengið mynddiskana senda frá lögreglunni

Hluti þeirra mynddiska sem sýndu yfirheyrslur í lögreglurannsókn í tengslum við mál gegn Berki Birgissyni og tólf öðrum voru sendir beint til verjanda Barkar. Þetta segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður tveggja sakborninga í málinu.

Karl Ingi Vilbergsson saksóknari í málinu sagði að mynddiskarnir hafi ratað í hendur verjanda Barkar fyrir mistök, sem séu á ábyrgð fangavarða á Litla Hrauni.

Börkur sjálfur hafi átt rétt á því að sjá mynddiskana en þeir hefðu ekki átt að rata út fyrir fangelsið, hvað þá í hendur verjanda hans.

„Einstaklega stórmannlegt“

„Þetta er einstaklega stórmannlegt í ljósi þess að hluti diskanna var boðsendur til verjanda Barkar beint frá LRH,“ segir Vilhjálmur við DV og bregst þar við ummælum Karls um ábyrgðin sé á herðum fangavarðanna. Vilhjálmur er lögmaður tveggja sakborninga í málinu.

Karl Ingi sagði í dag að einungis Ingi Freyr Ágústsson, sem er verjandi Barkar, hafi beðið um að fá mynddiskana fyrir þinghaldið í Héraðsdómi Reykjaness í gær og verið sé að svara þeirri beiðni nú. Þetta segir Vilhjálmur einnig vera rangt og staðhæfir að sumir verjenda í málinu hafi sótt um að sjá upptökurnar fengið synjun frá starfsmönnum Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.

Ingi Freyr fékk hins vegar diskana senda líkt og bréf sem barst honum bendir til. Bréfið sést skannað í viðhengi við fréttina.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.