„Þetta var bara viðbjóður, ég hef nú gist á ýmsum stöðum en aldrei lent í öðru eins,“ segir Þóra Björk Kristjánsdóttir sem ásamt fjölskyldu sinni lenti í heldur óskemmtilegri reynslu á dögunum. Fjölskyldan var á ferðalagi um landið í sumarfríi sínu og hafði pantað sér gistingu á gistiheimilinu Klausturhofi þar sem ætlunin var að dvelja eina nótt.
„Ég var búin að hringja og bóka herbergið fyrirfram. Þá var tekið niður kortanúmerið og ég borgaði herbergið og lét vita að við yrðum seint á ferðinni. Ég vildi borga fyrirfram til að bæði við og hann hefðum tryggingu,“ segir hún og á þar við eiganda gistiheimilisins.
Einhver misskilningur varð hins vegar þegar fjölskyldan kom að Klausturhofi seint um kvöld og kom þá í ljós að tvíbókað hafði verið í herbergið sem þau höfðu þegar borgað fyrir.
„Eigandinn setti okkur þá í gám sem er staðsettur bak við húsið þar sem ruslagámarnir frá honum voru. Inni í gámnum var ýldu- og myglulykt. Þarna var búið að sprauta einhvern gám og hann greinilega notaður í einhverjar græðgisreddingar. Þetta var viðbjóður,“ segir Þóra.
Þau voru ekki par sátt við gáminn sem þeim var úthlutað og kvörtuðu við eigandann. „Klukkan var eitthvað um ellefu, hálf tólf og við vorum seint á ferðinni með krakkana. Við sögðum við hann að þetta væri alveg hræðilegt en við gætum svo sem látið okkur hafa þetta ef það væri ekkert annað að hafa og spurðum hvort hann væri þá ekki til í að slá af verðinu,“ segir Þóra en fékk að hennar sögn ekki þau viðbrögð sem hún bjóst við.
„Það var ekki til umræðu að gefa okkur afslátt eða einhverjar miskabætur, ekki morgunmat eða neitt. Hann sagðist aldrei hafa heyrt fólk kvarta áður og við sögðum að hann hlyti að vera að ljúga.“
Hér birtist aðeins brot af greininni sem lesa má í heild sinni í DV í dag. Áskrifendur smella á meira hér fyrir neðan til að klára að lesa.


Hemmi Gunn fallinn frá