Magnaðar litmyndir frá Mars

Curiosity sendir frá sér litmyndir í hárri upplausn

Vitbíllinn Curiosity hefur nú sent frá sér litmyndir í hárri upplausn frá Mars. Farið lenti síðastliðinn sunnudag og er tilgangur vélmennisins að greina jarðveg Mars, senda myndir þaðan og kanna hversu lífvænleg plánetan er.

Borist hafa svarthvítar myndir en eru þetta fyrstu litmyndirnar sem berast frá yfirborði plánetunnar. Myndirnar eru teknar með mastursmyndavél vitbílsins og eru þær allar 1.200 pixlar á stærð.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.