„Þá ákvað ég að kæra – en þá voru auðvitað öll lífsýni löngu farin“

Missti kjarkinn til að kæra eftir fyrstu nauðgunina

Halldóra Kristjánsdóttir var fimmtán ára þegar henni var nauðgað í fyrsta sinn. Maðurinn sem nauðgaði henni hefur hlotið dóm fyrir kynferðisbrot, auk þess sem hann á nokkuð langan afbrotaferil að baki vegna ofbeldis og auðgunarbrota. Halldóra tilheyrir stuðningshópi á netinu þar sem allir meðlimir eiga það sameiginlegt að hafa orðið fyrir ofbeldi af hans hendi.

Í umfjöllun DV í júní síðastliðnum „Rjúfum þögnina“, var fjallað um mál tengt honum sem er enn í kæruferli.

Halldóra og maðurinn voru bæði unglingar þegar hann braut gegn henni; höfðu átt í ástarsambandi, en voru þó hætt saman.

„Ég var ekki nema fimmtán og ég hreinlega áttaði mig ekki á því hvað hafði gerst. Ég varð rosalega hrædd, en það var ekki fyrr en ég sagði frá því ári seinna sem að ég skildi að þetta var nauðgun. Þá ákvað ég að kæra – en þá voru auðvitað öll lífsýni löngu farin,“ segir hún.

Maðurinn var ekki ákærður þrátt fyrir að málið færi sína leið í gegnum kerfið. Málið þótti ekki líklegt til að fá sakfellingu.

Halldóra segir að vonbrigðin yfir því að maðurinn væri ekki ákærður hafi ágerst í huga hennar. Þau reyndust henni svo mikil að þegar það gerðist aftur að henni var nauðgað, þá treysti hún sér ekki til að kæra.

Nánar er rætt við Halldóru í helgarblaði DV. Þar segir hún átakanlega sögu sína af kynferðisofbeldi og baráttunni við að ná aftur heilsu eftir endurtekin áföll. Aðdragandinn að því að hún segi sögu sína er langur en tímabær að hennar mati. Hún hefur fylgst með umfjöllun sumarsins og séð að engin skömm er fólgin í því að segja frá kynferðisofbeldi, heldur þvert á móti er mikilvægt að skila skömminni.

Tengdar fréttir

„Mér hefur verið nauðgað sex sinnum“

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.