Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur stillti sér upp grímuklæddur á vagni og dreifði rósum í hinni árlegu Gleðigöngu sem haldin var í dag. Með gjörningnum lýsir hann yfir stuðningi við meðlimi rússnesku pönkhljómsveitinar Pussy Riot sem eiga yfir höfði sér allt að sjö ára fangelsi fyrir að flytja lag til höfuðs Vladimir Putin í dómkirkju Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Athygli vekur að það eru einmitt íslenskir meðlimir þess söfnuðar sem ber ábyrgð á nafnlausri hatursauglýsingu gegn samkynhneigðum í Fréttablaðinu í dag.
Framkvæmdastjóri Besta flokksins, aðstoðarmaður borgarstjóra og nokkrir borgarfulltrúar voru í fylgd borgarstjórans, en eins og sjá má af myndinni hér að ofan bar vagninn áletrunina Free Pussy Riot.
Fram kemur á vef íslenskra stuðningsmanna Pussy Riot að hljómsveitin samanstandi af rússneskum femínistum sem hafa að undanförnu sett upp óauglýsta pólitíska gjörninga í Moskvu þar sem viðfangsefnin hafa meðal annars verið staða kvenna í Rússlandi. „Textar hljómsveitarinnar einkennast af femínisma, andstöðu við spillingu og beinast gegn sitjandi valdhöfum. Síðustu aðgerðum hópsins var beint gegn kosningabaráttu Pútíns forsætisráðherra til embættis forseta Rússlands,“ segir á vefsíðunni.
Með klæðnaði sínum dró Jón Gnarr dám af klæðaburði Pussy Riot en meðlimir hljómsveitarinnar hylja jafnan andlit sín með skærlitum lambúshettum. Skrifa má undir áskorun til rússnesks saksóknara um að meðlimum Pussy Riot verði sleppt á vef Amnesty.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013