Fjöldi Íslendinga lét ekki rigninguna stöðva sig þegar hin árlega gleðiganga fór fram með pomp og prakt í Reykjavík í dag. Að sögn Ástu Kristínar Benediktsdóttur, göngustjóra hátíðarinnar var fólk í sólskinsskapi. „Fólk söng og dansaði í rigningunni. Það var rífandi stemning í bænum,“ sagði hún og bætti því við að tónleikarnir hefðu heppnast vel.
Fjöldi fólks lagði leið sína í miðborg Reykjavíkur í dag til að taka þátt í hinni árlegu gleðigöngu Hinsegin daga. Tónleikar á Arnarhóli hófust klukkan 15:30 og meðal skemmtikrafta voru Páll Óskar, Sigga Beinteins, Friðrik Ómar, Blár Ópal, Birna Björns, Þórunn Antonía, Friðrik Dór, Helgi Björnsson, Hafsteinn Þórólfsson, Viggó & Víóletta og BETTY frá Bandaríkjunum.
Stuðið heldur svo áfram á Broadway í kvöld þar sem meðal annars Páll Óskar ætlar að stíga á stokk.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi