„Það er verið að hefta atvinnufrelsi mitt, og það svo að þeir geti fengið peninginn í eigin vasa.“ Þetta segir Aðalbjörn Jóakimsson, starfsmaður á skipinu Fram Ís 25, í samtali við DV. Aðalbjörn sendi opið bréf á Georg Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi, en þar segir hann meðal annars að þvingandi valdboði hafi verið beitt til þess að færa viðskipti frá einkaaðila og yfir til Landhelgisgæslunnar. „Þeir eru að stöðva okkur til þess að fá flutningin sjálfir og greiðsluna til sín.“
Það var síðastliðinn föstudag sem lögreglumenn komu um borð í Fram Ís 25 og stöðvuðu flutninga á eldsneyti til Grænlands sem fyrirhugaðir voru sama dag. Aðalbjörn hafði gert leigusamning fyrir hönd Fram Ís við félagið Icebrit ehf um að skipið myndi flytja tunnur af eldsneyti og fleiri vörur fyrir Blue West Helicopters á Grænlandi. Aðalbjörn lýsir því í bréfinu hvernig lögregla og Siglingamálastofnun beittu þvingandi aðgerðum til að stöðva flutningana, en síðar hafi komið í ljós að Landhelgisgæslan sjálf ætli að annast flutningana fyrir gjald sem hugsanlega er „óeðlilega lágt.“ Þetta er Aðalbjörn afar ósáttur með og íhugar hann að kæra málið til innanríkisráðuneytisins.
Landhelgisgæslan ekki flutningafyrirtæki
Aðspurður um hvaða skýringar hann hafi fengið á aðgerðum lögreglu og Siglingamálastofnunar, segir Aðalbjörn lítið hafa farið fyrir skýringum. „Útskýringin er náttúrulega ekki haldbær þar sem samskonar skip eru að flytja svona vörur og hafa verið að því.“ Hann segir skipið með öll tilskilin leyfi, en lögreglan vísaði meðal annars til þess að skipið væri ekki flutningaskip, heldur fiskiskip. Hann segir langa hefð fyrir því að fiskiskip sigli með farma til Grænlands og því hafi ákvörðunin komið á óvart. „Svo ætlar Landhelgisgæslan að taka þennan flutning að sér fyrir gjald sem við hefðum annars átt að fá. Þarna á að stoppa frjálsan aðila svo að þeir geti fengið verkefnið sjálfir, en við erum alls ekki sáttir við það.“
Aðalbjörn segir ljóst að ríkið sé með þessu að taka sér pening á kostnað einkaaðila. Landhelgisgæslan sé ekki á neinn hátt betur útbúin til þess að flytja farm til Grænlands, enda reki gæslan ekki flutningafyrirtæki frekar en Fram Ís. Aðalbjörn segir skipið fullkomlega í stakk búið að flytja eldsneyti til Grænlands. Þetta er bara í tunnum, lokað niðri og hefur heimild til að vera undir opnu dekki enda er það algilt á skipum að þau sigli með olíuvörur í lokuðum tunnum.“ Hann undirbýr nú að fara mað málið lengra, enda verði ekki við þetta unað. „Ég gaf honum [Georgi KLárussyni] tækifæri til þess að svara þessu, en hann hefur ekki gert það ennþá. Ég mun á næstunni kynna þetta fyrir ráðherra og hvort þetta samræmist viðskiptaháttum á Íslandi og góðri stjórnsýslu.“
Hér fyrir neðan má lesa bréf Aðalbjörns í heild sinni
Sæll hr. forstjóri Georg Kristinn Lárusson
Með netpósti þessum er ég að láta þig vita af ákveðnu máli sem rétt er að þú sért upplýstur um vegna frekari aðgerða lögmanna minna ef málið er ekki skoðað og helst stöðvað.
Ég gerði leigusamning við félagið Icebrit ehf kt.480403-2820.um að skipið Fram ÍS 25 skyldi flytja tunnur af eldsneyti og f.l.vörur fyrir Blue West Helicopters Greenland c/o Aqqusineruaq 27 P box 1046 og eru þessar tunnur að fara til Grænlands vegna verkefnis þar að mér skilst. Skipið Fram ÍS 25 var hindrað að annast þessa flutninga vegna aðgerða opinberra aðila hérlendis m.a. lögreglu og Siglinamálastofnunar með þvingandi valdboði sem nær ekki til allra. Það snýr því skökku við að önnur löggæslustofnun Landhelgisgæslan ætli að annast þessa flutninga fyrir gjald og hugsanlega gjald sem er óeðlilega lágt.
Grunnur þessarar skoðunar og að láta æðsta mann LHG vita af þessu er:-
1. Það getur ekki verið hlutverk LHG að annast flutninga fyrir einkaaðila nema aðeins að sýnt sé fram á að enginn einkaaðili geti annast þá flutninga. Geti mitt skip ekki annast þessa flutninga geta almenn flutningaskip gert það og hlýtur það að vera spurning hvort viðkomandi aðili hafi ekki leitað tilboða hjá þeim sem mér.
2. Það getur ekki verið hlutverk LHG að bjóða flutninga undir því verði sem viðurkenndur og vottaður aðili mundi hafa greitt fyrir flutningana sbr. skipið Fram, eða viðurkennt flutningaskip einkarekinna aðila.
Ég vil hvetja þig að kynna þér þetta mál og kanna hvort það samræmist lögum um Landhelgisgæslu Íslands að annast flutninga á flugvélaeldsneyti í tunnum fyrir einkaðila. Það mætti spyrja sig af hverju LHG fer ekki að auglýsa þjónustu sína í miðlum þessa lands en a.m.k. mundi svona mál vekja umræður og ekki síst í tengslum við yfirtöku sjúkraflugs af einkaaðila sem nú annast það.
Ég mun kæra þetta mál til ráðuneytis þess sem fer með málefni LHG í fyrramálið. Tel hinsvegar eðlilegt að láta þig vita af málinu til að þú getir metið hvort þessi flutningur samræmist lögum um þína stofnun og skora á þig að stöðva hann ef þú metur að svo sé.
Kveðjur,
Aðalbjörn Jóakimsson

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013