Taska eiginkonunnar kostar árslaun

Kim Jong-Un örlátur við ástina sína

Á meðan milljónir íbúa Norður-Kóreu líða gríðarlegan skort og eiga vart í sig né á virðist Kim Jong-Un leiðtoga þjóðarinnar ekki muna um að splæsa ríkulega á nýbakaða eiginkonu sína.

Í nýlegri heimsókn á herstöð náðist mynd af hjónakornunum þar sem þau sátu í forsælunni og börðu hernaðaræfingar svokallaðrar hersveitar númer 552 augum og líkaði vel.

Nágrannar þeirra í suðri virðast nú hafa lagst í að kryfja þessa mynd sem stjórnvöld í norðri sendu út í gegnum ríkisfjölmiðil sinn enda má sjá að Ri Sol-Ju er með dýrindis handtösku sér við hlið í sætinu.

Og niðurstaðan er sú að þarna sé leiðtogafrúin með lúxusveski frá Christian Dior sem þykir hin mesta munaðarvara í hinum vestræna heimi. En töskur sem þessar, að því gefnu að þær séu ekta, geta kostað sem nemur allt að 180 þúsund krónum. Það er svipuð upphæð og meðalverkamaðurinn í hinu fátæka ríki Kim Jong-Un getur vænst að þéna á heilu ári.

En slíkur samanburður hefur sjaldnast truflað einræðisherra Norður-Kóreu sem lifað hafa í vellystingum um áratugaskeið meðan 24 milljónir þegna þeirra lifa í sárri fátækt.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.