Geimfarið sprakk í loft upp

Morpheus var frumgerð sem virkaði ekki sem skyldi

NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, framleiðir fjöldann allan af frumgerðum á geimförum sem enda á því að virka ekki sem skyldi. Það er hluti kostnaðarins við að koma förum á borð við Curiosity langt út í geim í rannsóknarskyni.

Þessi frumgerð lendingarfars gekk ekki sem skyldi. Morpheus er far sem hefur verið í hönnunarferli undanfarið og gengur á metani og súrefni í vökvaformi.

Morpheus hafði tekið nítján sinnum á loft þegar hann var tjóðraður við krana, en þegar kom að því að farið myndi fljúga eitt og óstutt í frjálsu flugi missti það fljótlega jafnvægi og flaug öfugt niður á jörðina, og sprakk síðan í loft upp.

Talsmenn NASA sögðu við CNN að slíkar prófanir væru liður í hönnunarferlinu og að verkfræðingarnir myndu læra af þessu. Farið kostaði 500 þúsund dali, sem eru rétt rúmar 60 milljónir. Ný gerð af farinu er nú í byggingu og verður hún tilbúin eftir nokkra mánuði.

Hér má sjá myndband af atvikinu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.