Egill: Háð duttlungum forseta hvað fer í þjóðaratkvæðagreiðslu

Hefði verið kosið um fleiri mál með nýrri stjórnarskrá

„Eins og stjórnarskráin er skrifuð nú er það háð duttlungum forseta hvaða mál eru sett í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ skrifar fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason á bloggsíðu sína á Eyjunni þar sem hann les í orð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, þegar hann var settur í embætti í fimmta skiptið í dag.

Ólafur sagði stjórnarskrána hafa reynst vel eftir hrun og hún hafi valdið því að hægt var að boða til fjölda kosninga. „Það var vissulega kosið um Icesave, en ekki um aðra hluti eins og til dæmis það að innlán í bönkum skyldu tryggð upp í topp, um kvótamálið og skuldir heimilanna,“ skrifar Egill sem segir forsetann halda máskotsrétti sínum í nýrri stjórnarskrá sem er til meðferðar Alþingis.

„Sem reyndar er nokkuð hæpið vegna þess að einnig er gert ráð fyrir því að nokkuð lág hlutfallstala kjósenda geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mál.

Ný stjórnarskrá hefði semsagt engu breytt í þessu efni, nema síður sé. Þvert á móti eru líkur að kosið hefði verið um fleiri mál, til dæmis hefði nýja stjórnarskráin gert andstæðingum ESB kleift að krefjast atkvæðagreiðslu um hvort fara ætti í aðildarviðræður. Líklega hefði þeim tekist að safna nægum fjölda til þess,“ skrifar Egill sem er


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.