Hjón með börnin sín þrjú, 13 ára son og 10 og 5 ára dætur, ætluðu að eyða deginum á hjólabáti í sumarfríinu sínu á Spáni fyrir viku síðan.
Þau ýttu bátnum af stað og hjóluðu eins langt og reglur segja til um. Þegar fjölskyldan var komin dágóðan spotta frá landi, urðu hjónin vör við að ekki var allt með felldu; starfsmenn hjólabátaleigunnar höfðu gleymt að setja tvo tappa í göt á hjólabátinn. Því hóf báturinn að sökkva.
Snör handtök foreldranna virðast hafa skipt sköpum. Móðirin náði með naumindum að setja handakúta á yngstu stúlkuna áður en báturinn sökk. Faðirinn greip tappana sem lágu á gólfinu í bátnum en náði einungis að setja annan þeirra í gat á bátinn. Hann stakk því fingrunum í gat á bátnum þar sem hinn tappinn hefði átt að fara.
Vegna snarræðis föðurins sökk hjólabáturinn því ekki allur og gat fjölskyldan hangið á þeim hluta sem enn var á yfirborðinu meðan hún beið eftir hjálp. Ekki var hægt að lyfta sér upp á bátinn því þá hefði hann sokkið. Bátur strandgæslunnar var nokkuð langt í burtu og því leið rúmur hálftími þangað til að hjálp bar að. Mátti fjölskyldan því þola að fá öldur yfir sig meðan fjölskyldumeðlimirnir notuðu krafta sína við að halda sér á floti - og faðirinn allan tímann með fingurna í gatinu á bátnum. Yngsta barnið hékk á hálsi móðurinnar meðan ósköpin dundu yfir.
Læknir rannsakaði litlu stúlkurnar eftir að strandgæslan sigldi með fjölskylduna í land og var sú yngri illa haldin af stressi og hræðslu. Pétur Pétursson, afi barnanna þriggja, segir yngstu stúlkuna enn hrædda við sjó og vilji því ekki fara á ströndina aftur. Hann segir jafnframt tilviljun og hraustleika fjölskyldunnar ástæðuna fyrir að allir komust lífs af.
Málið hefur verið kært til spænskra yfirvalda.

Hemmi Gunn fallinn frá