Barði tveggja ára son sinn vegna málgalla

Á yfir höfði sér 30 ára fangelsi

David Lee Sinnett hefur viðurkennt að hafa barið tveggja ára gamlan son sinn með herðatré. Sinett býr í Flórída í Bandaríkjunum en svo gæti farið að sonur hans gæti misst augað vegna áverka sem hann hlaut.

Lögreglan í Flórída segir Sinnett hafa barið drenginn vegna þess að hann gat ekki borið fram nafn systur sinnar. Drengurinn er haldinn málgalla og reiddist Sinnett þegar hann gat ekki borið fram nafnið almennilega. Sinnett brákaði bein í andliti barnsins en læknar segja það geta haft áhrif á sjónina og geta leitt til þess að drengurinn missi hreinlega augað.

Verði hann sakfelldur á hann yfir höfði sér 30 ára fangelsisvist.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.