„Með honum fór ekki aðeins ein manneskja heldur fallegt líf og framtíð ungs drengs. Vegna þess að önnur manneskja tekur þá ákvörðun að hegða sér með ábyrgðarlausum og ófyrirleitnum hætti og að aka á þessum ógeðfellda hraða. Og fyrir það er hann dæmdur í sex mánaða fangelsi sem er skilorðsbundið til tveggja ára, segir Róbert Ólafsson, faðir Eyþórs Darra Róbertssonar sem lést eftir bílslys á gatnamótum Geirsgötu og Tryggvagötu í Reykjavík í ágúst í fyrra.
Eyþór lést, 14. ágúst, degi fyrir 18 ára afmælið sitt.
Engin áfallahjálp
Róbert segir það hafa komið sér á óvart að engin hjálp hafi verið í boði eftir áfallið. „Viðmótið uppi á spítala var ofsalega hlýtt og gott. En eftir að þetta var búið að gerast þá var ekkert meira fyrir okkur að gera en að fara bara heim. Okkur var ekki boðin nein hjálp eða neitt þannig. Ekkert áfallateymi eða neitt. Þannig kom maður bara heim og þar var allt dótið og maður vissi ekkert hvað tæki við. Eftir jarðskjálfta er fólki boðið áfallahjálp og um daginn var starfsmaður í einhverju fyrirtæki rændur og allir fengu áfallahjálp en í svona þá er manni engin hjálp boðin.“
Róbert segist hugsa til Eyþórs Darra hvern einasta dag en hann hafi verið einstaklega gamansamur og hlýr drengur. „Hann var svo skemmtilegur og skapandi. Það var svo mikil gleði í honum og gaman að vera í kringum hann. Hann gat líka verið ofboðslega alvörugefinn og margir leituðu til hans. Hann var með gríðarlega sterka réttlætiskennd og var fyrsti maðurinn til að mæta á staðinn ef eitthvað bjátaði á hjá fólki. Hann var alveg ofboðslega vandaður strákur.“
Hægt er að lesa viðtalið í heild í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið það allt með því að smella á Meira.


Hemmi Gunn fallinn frá