Mikil umræða hefur verið milli unglinga í netheimum vegna nýrrar vefsíðu. Enginn veit hver stendur að baki síðunni en á henni eru viðhöfð ljót ummæli um unglinga undir lögaldri. Slíkt einelti meðal unglinga á internetinu virðist vera mjög algengt að sögn þeirra sem DV hefur rætt við.
Ekki vitað hver er með síðuna
Á vefsíðunni sem um ræðir eru birtar myndir af unglingum, þeir nafngreindir og ljótir hlutir sagðir um þá. Undir einni myndinni er þetta skrifað: „Hóra* einsvo sumir vilja frekar kalla hana. Reið X á meðann hann var á föstu með x.“ Stúlkan sem um ræðir er 15 ára. Í öðrum færslum eru viðhöfð misfögur ummæli um viðkomandi einstaklinga sem eru á meðfylgjandi myndum.
Vefsíðan var sett upp fyrir aðeins örfáum dögum og því ekki komnar margar færslur inn á hana en greinilegt að sá sem stendur að baki síðunni ætlar sér að halda henni gangandi. Á miðvikudagskvöld auglýsti sá hinn sami eftir meira slúðri til að setja inn: „Gossip girl here. Vá strax komin með 300 followers á 2 dögum! vel gert allir, nú má alveg fara að senda inn eld heit gossip!“ Ekki er vitað hver stendur að baki þessu en hugmyndin er augljóslega sú sama og er að baki þáttunum um Gossip Girl.
Í samtölum við nokkra unglinga virðast síður sem þessar vera algengar á internetinu. „Þetta er bara einelti. Það er alltaf verið að setja upp svona síður en yfirleitt lokar lögreglan þeim, þetta er mjög algengt,“ sagði einn þeirra.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013