„Ör á sálum þessara barna“

Ögmundur ósáttur við hvernig dætur Hjördísar voru teknar

„Það er skylda mín sem foreldri að vernda börnin mín og það var það sem ég gerði. Mér er refsað fyrir það,“ segir Hjördís Svan Aðalheiðardóttir, móðir stúlknanna þriggja sem fjarlægðar voru af heimili hennar á föstudaginn í síðustu viku.

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, gagnrýnir þær aðferðir sem notaðar voru við að fjarlægja börnin af móður sinni.

Hagsmunir barnanna í fyrirrúmi

„Almennt vil ég segja um þetta mál og mál af þessu tagi að það á helst aldrei að koma til þess að barn sé tekið með lögregluvaldi af foreldri, hvað þá af móður sem börnin eru mjög háð. Þessi aðgerð byggðist á dómum bæði í Danmörku og hér heima. Það breytir því ekki að þegar svona gerist þá má leiða líkum að því að það verði ör á sálum þessara barna alla tíð,“ segir Ögmundur. „Þetta er nokkuð sem samfélagið þarf að taka mjög alvarlega og læra af. Núna er þessi hlutur orðinn og þá er að reyna að gefast ekki upp heldur þurfum við að fylgjast með þessu máli áfram inn í framtíðina. Við erum ekki laus allra mála, hvorki í þessu máli né nokkru öðru máli þar sem svona kemur til.“

Nánar er fjallað um málið í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild með því að smella á Meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.