Nágranni á spítala eftir eldsvoða

Mikill eldur í Selvogsbrekku

Íbúðarhús í Selbrekku í Kópavogi skemmdist mikið í bruna í nótt en tveir voru í húsinu þegar eldurinn kviknaði, komust þeir báðir út og sakar ekki. Neyðarlínan fékk tilkynningu um eldinn um klukkan hálfþrjú í nótt og um klukkutíma síðar hafði slökkviliðið ráðið niðurlögum hans.

Húsið við Selbrekku er tveggja hæða einbýlishús, en þeir sem voru í húsinu voru á neðri hæð, en talið er að eldurinn hafi komið upp á efri hæð, en ekki er þó fullljóst um eldsupptök. Húsið er mikið skemmt

Nágranni sem veitti aðstoð var fluttur á slysadeild þar sem talið var að hann væri með reykeitrun.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.