Leggja má niður eftirlitsstofnanir

Hafa brugðist sínu hlutverki, en þó þarf að halda Fjármálaeftirlitinu

Inntir eftir því hvar skera megi niður annars staðar en í grunnþjónustu ríkisins hafa þingmenn mismunandi hugmyndir. DV fékk nokkra álitsgjafa af þingi til þess að varpa fram sinni sýn á málið.

„Ég ætla fyrst að nefna eftirlitsstofnanir sem hafa verið settar á fót eftir að EES-samningurinn var samþykktur,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins við DV.

„Hér er ég til dæmis að vísa til umhverfisstofnunar. Hún hefur brugðist sínu lögbundna hlutverki, samanber iðnaðarsaltsmálið. Þá má draga stórlega úr starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Ég efast um allan eftirlitsiðnaðinn. Það má raunverulega leggja niður allan eftirlitsiðnaðinn, að frátöldu Fjármálaeftirlitinu.“

Spara á ráðuneytum

Segir hún einnig að samhæfa megi rekstur ráðuneyta. „Í öðru lagi má samhæfa rekstur ráðuneytanna. Þar má spara mikið. Ég er hér að tala um reksturinn – ekki málefnastarfið.“

„Í þriðja lagi má nefna ýmis gæluverkefni ríkisstjórnarinnar. Til dæmis ESB-umsóknina. Það á að draga umsóknina til baka vegna þess að þar liggja fleiri tugir milljóna í nefndarstarfi.“

Leggja má niður stofnanir

„Það má leggja niður allar nefndir og stofnanir sem stofnað hefur verið til með lögum eftir hrun. Opinbera kerfið er að tútna alltof mikið út. Það er varla til sú lagasetning sem fer í gegnum Alþingi sem gerir ekki ráð fyrir fjölgun opinberra starfsmanna. Þetta hefur verið minn málflutningur síðan ég settist á þing,“ segir Vigdís.

„Það er hægt að skera alveg óhemju mikið niður í utanríkisþjónustunni. Við getum lagt niður ákveðin sendiráð til dæmis eða tekið upp frekara samstarf við Norðurlandaþjóðirnar í þessum efnum.“

Umboðsmann skuldara burt

„Það má leggja umboðsmann skuldara af. Það er enginn árangur þar inni; fólk fær ekki úrlausn sinna mála. Sú starfsemi ætti betur heima í bankakerfinu. Fjölmiðlanefnd má leggja af. Það má leggja af nefndina um kynjaða hagstjórn. Það má skera niður hjá Lyfjastofnun ríkisins. Seðlabanki Íslands þarf að sæta stórkostlegum niðurskurði. Svona gæti ég talið endalaust.“

Í DV í dag má sjá svör fleiri þingmanna, svo sem Árna Johnsen, Atla Gíslasonar og Jóns Bjarnasonar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.