„Ég hef aldrei séð jafn mikið orðbragð og viðbjóð um forseta landsins sem ekki sæma manni úr þessari stétt,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, sem hefur tilkynnt guðfræðinginn Davíð Þór Jónsson til Biskupsstofu. Ástæðan er grein Davíðs um Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, sem birtist á bloggsíðu Davíðs daginn fyrir forsetakosningarnar 30. júní síðastliðinn.
„Varla fær um það starf“
„Maður sem gengið hefur í gegnum guðfræðideild og lært siðfræði, og er falið það vandasama verk að vera í þjónustu fyrir börn og unglinga. Þetta ber vott um að hann geti varla verið fær um það starf, nema hann hafi verið í einhverju annarlegu ástandi,“ segir Guðni.
Segist vændur um nasisma
Greinin nefnist Að kjósa lygara og rógtungu, en í henni sagði Davíð Þór forseta Íslands hafa byggt kosningabaráttu sína á ósannindum og níðrógi. Davíð starfar sem fræðslufulltrúi Austurlandsprófastsdæmis en Guðni segir hann hafa ráðist að sér og vænt sig um að hafa verið í nasistaflokki. „Ég hef áður orðið fyrir þessari árás og vann það mál fyrir dómstóli, enda er enginn maður jafn fjarri nasistanum og ég og Íslendingar yfir höfuð,“ segir Guðni sem ræddi þetta við biskup Íslands.
Vill að Davíð gjaldi fyrir skrifin
„Ég sagði biskupi að það væri erfitt á þessum tímum þegar kirkjan væri að endurskipuleggja sig að sitja uppi með svona þjón. Ég gerði kröfu til þess, sem kristinn maður og þjóðkirkjumaður, að þessi maður myndi gjalda fyrir svona skrif um forseta Íslands og ráðast svona að æru minni. Auðvitað íhuga ég að fara með þetta mál fyrir dómstóla,“ segir Guðni.
„Ég tel hárrétt að ávíta þennan mann og að biskup og kirkja skoði gang sinn að vera með svona þjón sem kemur svona fram við almenna borgara og forseta landsins.“

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi