Norðmaður sem að hlaut þjálfun í búðum þekktra hryðjuverkasamtaka í Jemen vann áður á leikskóla. Frá þessu greinir norska Dagbladet.
AP sagði frá því í lok síðasta mánaðar að norskur maður hefði undanfarna mánuði verið í þjálfun hjá hryðjuverkasamtökum í Jemen. Öryggisstofnanir í Evrópu viti af manninum, en ekki hefur tekist að fá hann framseldan þar sem að það er ekki ólöglegt í Noregi að hljóta þjálfun frá hryðjuverkamönnum.
Bíður átekta
Segir AP að maðurinn bíði átekta, tilbúinn til þess að taka þátt í aðgerðum samtakanna. Það hefur vakið athygli í Noregi að maðurinn var áður talsvert rólegri, hann vann á dagvistarheimili fyrir börn í Osló og var áður meðlimur norska græningjaflokksins. Þar áður hafði hann verið virkur í Blitz-samtökunum, sem eru samtök róttækra vinstri manna og anarkista.
Hefur Dagbladet eftir fyrrum vin mannsins að hann hafi verið hallur undir samsæriskenningar, sérstaklega í kringum árásirnar á tvíburaturnana árið 2001. En straumhvörf urðu í lífi hans þegar hann giftist dóttur diplómata frá Norður Afríku. Þá tók hann upp Íslamstrú, tók upp nafnið Abu Abdurrahman, og gekk í kjölfarið til liðs við íslömsk hryðjuverkasamtök.
Þegar til Jemen var komið hafði hann þegar slitið öllum böndum við Noreg og vini sína þar.
Eru að leita að tilgangi
Norski miðillinn Local hefur eftir Peter Neumann, prófessor við King‘s College í London, að menn á borð við Abu séu oft alla sína ævi að leitast eftir sterkri, jafnvel öfgafullri, hugmyndafræði til þess að fylgja. Því laðist þeir að jaðarhópum.
„Menn sem ganga inn í svona jaðarhópa eru oft leitandi að tilgangi, leitandi að einhverju sem þeir gætu helgað lífi sínu og leiðast því oft inn í öfgahópa. Þeir leita sterkar hugmyndarfræði sem gæti gefið þeim tilgang og merkingu í líf sitt.“
Sagði hann einnig að á meðal vestrænna karlmanna sem taki upp íslamstrú séu hlutfallslega fleiri öfgamenn, heldur en á meðal múslima sem alast upp í trúnni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum