Unnur Gunnarsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Þetta kom fram í fréttatilkynningu Fjármálaeftirlitsins laust fyrir hádegi í dag.
Starf forstjóra Fjármáleftirlitsins var auglýst laust til umsóknar í apríl og gefinn umsóknarfrestur til 20. maí 2012. Í febrúarmánuði hafði Gunnar Þ. Andersen þáverandi forstjóri verið látinn taka pokann sinn en Unnur Gunnarsdóttir hefur starfað sem settur forstjóri frá 1. mars.
Tíu manns sóttu um starfið, þar á meðal Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands og formaður Samtaka fjárfesta, Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, og Bolli Héðinsson hagfræðingur.
Unnur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í lögum bæði í Englandi og Kanada. Hún gegndi áður starfi yfirlögfræðings Fjármálaeftirlitsins. Hún hefur víðtæka reynslu af störfum við fjármálatengd verkefni, opinbera stjórnsýslu og í dómskerfinu. Hún starfaði meðal annars í sjö ár hjá bankaeftirliti Seðlabanka Íslands og í fimm ár sem sérfræðingur í fjármálaþjónustu hjá EFTA skrifstofunni í Brussel. Þá var hún framkvæmdastjóri Fjölgreiðslumiðlunar í tvo ár. Innan opinberrar stjórnsýslu hefur Unnur meðal annars reynslu sem skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu í sjö ár og sem settur héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Ráðningarferlinu er lýst í skýrslu stjórnar Fjármálaeftirlitsins sem nálgast má hér.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013