Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti í Reykjavík klukkan hálf sex í kvöld. Leitin að hvítabirninum við Vatnsnes hefur ekki borið árangur en skytta var um borð í þyrlunni.
Það var í gær sem að Landhelgisgæslunni barst beiðni frá fjarskiptamiðstöð lögreglunnar um aðstoð þyrlu eftir að óstaðfestar fregnir bárust af hvítabirni á sundi við Vatnsnes.
Þegar TF-LIF kom á svæðið var fljótlega lent við Geitafell þar sem för sáust í sandinum sem talin voru vera eftir bjarndýrið. Var í framhaldinu leitað ítarlega um Vatnsnes án árangurs.
Í samráði við lögreglu var þá ákveðið að gera hlé á leitinni til morguns. Í morgun var farið að nýju í loftið og leitað með strandlengjunni frá Skaga inn Húnafjörð, yfir Þingeyrarsand og fyrir Vatnsnes. Var síðan haldið áfram alveg vestur um og norður í Bjarnafjörð á Hornströndum.
Ekki sáust frekari merki um hvítabjörn þrátt fyrir mikla leit en hins vegar fann þyrluáhöfnin öldumælisdufl sem fyrir nokkru síðan slitnaði upp. Hafði duflið rekið frá Straumnesi, fyrir Horn og inn á Strandir. Var lent við duflið og það tekið um borð. Þá var flogið á Ísafjörð til eldsneytistöku og síðan til Reykjavíkur þar sem lent var klukkan 17:30.

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013