Sveddi tönn gæti fengið langan dóm

Sverrir Þór Gunnarsson, einnig þekktur sem Sveddi tönn, gæti átt yfir höfði sér margra ára dóm í Brasilíu verði hann fundinn sekur um fíkniefnainnflutning. Sverrir var handtekinn í Río de Janeiro á mánudag vegna smygls á 46 þúsund e-töflum.

Karl M. Gronvold, sem er þekktur undir nafninu Brasilíufanginn, hlaut tæplega fjögurra ára dóm fyrir að reyna að smygla tæpum sex kílóum af kókaíni úr Brasilíu árið 2007. Honum var sleppt í febrúar árið 2010 og kom aftur til Íslands árið 2011 eftir að hafa verið á skilorði í Brasilíu.

Handtekinn á kaffihúsi

Sverrir var handtekinn á kaffihúsi í kjölfar þess að fíkniefnin höfðu verið gerð upptæk seinnipart mánudagsins, en þau voru í farangri brasilískrar konu, hinnar 26 ára Renatu Araujo Neves, sem flaug til Ríó frá Lisbon í Portúgal. Efnin fundust við hefðbundið tollaeftirlit. Í farangri hennar voru um 46.000 e-töflur.

Renata er samkvæmt brasilískum fjölmiðlum kærasta Sverris. Við yfirheyrslur sagði Renata lögreglunni frá vitorðsmönnum sínum tveimur, Sverri og manni að nafni Marco Dias Bittencourt e Silva, sem myndu hjálpa henni við að selja eiturlyfin. Til stóð að þau myndu hittast á kaffihúsinu á Ipanema sem er í suðurhluta borgarinnar.

Að svo búnu framkvæmdi lögreglan húsleit í íbúð Marcos og fann hún þar nokkuð magn af sýru ásamt marijúana. Einnig var leitað á hótelherbergi Íslendings og þar fannst hass. Sverrir hafði komið með sama flugi og Renata en lögreglan beitti sérstakri greiningaraðferð sem að sýnir hversu oft hver farþegi flýgur og hvert. Þetta er gert til þess að koma auga á grunsamleg ferðamynstur sem myndu gefa til kynna smygl.

Það er algengt að eiturlyfjum á borð við e-töflur og sýru sé smyglað til Brasilíu frá Evrópu. Síðast þegar mikið magn af e-töflum var gert upptækt munu það hafa verið 16.000 töflur, að því er brasilískir fjölmiðlar greina frá.

Gaf upp falskt nafn

Sverrir gaf upp falskt nafn við komuna í Río de Janeiro og þóttist vera 43 ára Breiðhyltingur, segir Fréttablaðið. Þegar nafnið var sent íslenskum yfirvöldum komust þau fljótlega að því að sá maður var alls ekki í haldi lögreglu þar ytra.

Í Fréttablaðinu er greint frá því að Sverrir hefur svo árum saman verið undir smásjá íslenskra lögregluyfirvalda, grunaður um að hafa staðið á bak við mörg stór smyglmál Íslendinga hingað til lands og til Suður- Ameríku. Hinsvegar hefur ekki tekist að hafa hendur í hári hans fyrr en nú. Hann hefur verið búsettur í Brasilíu og á Spáni undanfarin ár. Hans var leitað á Spáni árið 2010 án árangurs í kjölfar þess að sakborningur í fíkniefnamáli hér á landi benti á Sverri sem höfuðpaur.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.