Skipstjóri skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem strandaði á skeri í ársbyrjun segir æðri máttarvöld hafa stýrt sér þegar harmleikurinn átti sér stað.
Francesco Schettino hefur verið í stofufangelsi frá því að stuttu eftir að atvikið átti sér stað, en honum er gefið að sök að hafa með gáleysi sínu ollið dauða þrjátíu manns og að hafa skilið farþegana eftir um borð á meðan að hann forðaði sér.
Hann segir í grein sem birt er í ítölsku dagblaði að hann hafi í raun með innsæi sínu komið í veg fyrir stórslys, og á hann þar við að fleiri hefðu látist og skemmdirnar hefðu orðið meiri.
Segir hann að enginn hafi látið sig vita að skipið væri ekki á réttri braut. Það hafi ekki verið fyrr en að hann kom auga á froðurák í sjónum að hann hafi áttað sig á því hversu nærri skerjunum skipið væri.
„Það var merkið sem leiddi til þess að ég gaf skipun um að beygja á stjórnborða. Þetta var hreint innsæi. Á því augnabliki var engu líkara en að hönd guðs leiddi mig áfram. Hefði ég ekki beygt, þá hefði bógur skipsins hafnað á skerjunum. Það hefði orðið stórslys.“
Mál ákæruvaldsins gegn Francesco mun verða tekið fyrir þann 21. júlí næstkomandi, en hann kveðst vera saklaus.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum