Sakfelldir fyrir að fyrirskipa rán á börnum

Komu börnum pólitískra andstæðinga fyrir í fóstri, undir nýju nafni

Tveir argentínskir einræðisherrar voru í dag sakfelldir fyrir að hafa á tímum herforingjastjórnarinnar í Argentínu fyrirskipað rán á ótal börnum.

Glæpirnir áttu sér stað á tíma sem kallaður er „Skítuga stríðið“ eða „La Guerra Sucia“, og er þar átt við áralangt tímabil ofsókna gegn pólitískum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Fyrst undir forystu Jorge Rafael Videla á árunum 1976 til 1981 og síðan undir forystu hershöfðingjans Reynaldo Benito Bignone á árunum 1982-1983.

Í valdatíma einræðisherrana tveggja voru þúsundir teknir af lífi og tugir þúsunda hurfu – oftast vinstrisinnaðir gagnrýnendur ríkisstjórnarinnar, blaðamenn eða stuðningsmenn forsetans Peron. Peron fór í útlegð við valdatöku Bignone og Videla.

Það sem að einræðisherrarnir voru sakfelldir fyrir var að fyrirskipa ótal mannrán, en samkvæmt skipunum þeirra var börnum stolið af andstæðingum ríkisstjórnarinnar og þeim komið fyrir í fóstri hjá öðrum undir nýju nafni. Þeir voru sakfelldir fyrir nákvæmlega 34 mannrán í dag og í öll skiptin voru fórnarlömbin börn.

Videla afplánar þegar fangelsisdóm en hann var áður dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir glæpi sína. Bignone afplánar nú 25 ára fangelsisdóm. Videla hlaut 50 ára dóm í dag, en Bignone 15 ára dóm, sem bætast ofan á þá dóma sem þeir hafa þegar hlotið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.