Sagði skilið við undirheima: „Þetta er ógeðslegur heimur“

Leiddist út á glæpabrautina eftir hrottalegt einelti í grunnskóla

Fjölmargir þeirra sem að hafa fetað glæpabrautina þurftu að glíma við einelti í æsku. DV ræddi við mann sem vill ekki koma fram undir nafni en er hér kallaður Sigurður. Ungur varð hann fyrir einelti og lenti fjórtán ára gamall í vafasömum félagsskap, í leit að viðurkenningu, hann vildi sanna sig.

„Ég var bara barn kominn í þennan heim og átti ekkert heima þarna. En þarna var maður jafningi annarra og gerði hluti til að sanna sig. Síðan gerist eitthvað og þá ertu ekki lengur jafningi, ef þú gerir eitthvað af þér þá færðu ekki annan séns. Ég mæli ekki með því við nokkurn mann að sækja sér viðurkenningu á þennan hátt. Þetta er ógeðslegur heimur,“ segir Sigurður sem sagði skilið við þetta líferni fyrir nokkrum árum síðan.

Gildum samfélagsins snúið á haus

Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir þekkt að einstaklingar sem hafi lent utanveltu í samfélaginu gangi til liðs við gengi þar sem þeir komist í skjól og öðlast jafnvel óttablandna virðingu frá samfélaginu.

„Þetta er hægt að sjá í gengjum af ýmsu tagi. Yngri karlar mynda og fara í unglingagengi, mótorhjólagengi eða glæpagengi og mynda um leið nokkurs konar eigin kúltúr og hagsmunafélag. Þeir hafa þá aðra félaga til að hjálpa sér í lífsins ólgusjó en þetta er greiði á móti greiða og ætíð hætta á að lenda í einhverju misjöfnu. Gildum samfélagsins er iðulega snúið á haus í svona félagsskap,“ segir Helgi.

„Það sem þykir óæskilegt hjá okkur þykir kannski spennandi eða eftirsóknarvert hjá þeim og sá sem þorir að ganga lengst gegn samfélaginu fær einhverja stöðu innan hópsins Neysla fíkniefna verður álitin töff og ómissandi hluti af lífsstílnum og ofbeldi er réttlætanlegt við lausn deilumála. Stærsti glæponinn verður kannski leiðtogi hópsins. Ungmenni sem hafa verið núll og nix í skólakerfinu og alltaf undir í samfélaginu, dragast að svona félagsskap eins og flugur að ljósi. Þarna fá þeir sálufélaga, jafnvel uppreisn æru að eigin mati og um leið óttablandna virðingu annarra. Svona félagsskapur verður spennandi ef þú hefur alltaf verið á botninum í samfélaginu. “

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.