Bannað að setja pappír í almennt rusl

Tillaga umhverfis- og samgönguráðs samþykkt í Reykjavík í dag

Borgarráð samþykkti í dag tillögu umhverfis- og samgönguráðs um stóraukna flokkun og hirðingu pappírsefna og skilaskyldra umbúða. Frá og með 1. október mun ekki verða leyft að setja pappírsefni og skilaskyldar umbúðir með í ílát fyrir almennt heimilissorp.

Segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að mikil kostnaður sparist við endurvinnslu á sorpi og því sé allar líkur á því að sorphirðugjaldi lækki í kjölfar breytinganna. Telur borgin að 43 milljónir geti sparast í móttökugjöldum vegna urðunar á blönduðu sorpi.

Þá muni Reykjavíkurborg stórefla almenna flokkun á pappírsefnum frá heimilissorpi líkt og hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Málmar séu lausir

Þá hvetur borgin íbúa til að setja málma, til að mynda niðursuðudósir, álpappír og annan málm lausa í tunnu fyrir almennt heimilissorp, en ekki í plastpoka ofan í tunnunni. Þetta mun gera Sorpu auðveldara fyrir að flokka málma frá blönduðu sorpi, en það er gert vélrænt.

Aðalbreytingin á sorphirðu í Reykjavík felst í því að ekki má lengur að setja pappír og umbúðir með skilagjaldi í almennt heimilissorp.

Fá fyrst viðvaranir

Íbúar munu fá viðvaranir í fyrstu fjögur skiptin ef pappírsefni eða skilagjaldsumbúðir eru ekki flokkaðar frá en síðan kemur óhjákvæmilega að því að tunnan verður skilin eftir óhirt rétt eins og verið hefur varðandi önnur efni sem ekki mega fara í heimilissorpið. Verður þá að greiða sérstaklega fyrir aukaferð til losunar.

Á meðan breytingarnar ganga yfir munu íbúar fá nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig staðið skuli að flokkun pappírs frá almennu heimilissorpi og eru Reykvíkingar hvattir til þess að kynna sér þær vel. Innleiðing breytinganna mun eiga sér stað í einu hverfi í einu frá október næstkomandi og fram í apríl á næsta ári.

Í Reykjavík standa íbúum til boða þrjár leiðir varðandi flokkun og endurvinnslu:

BLÁA TUNNAN FRÁ REYKJAVÍKUBORG

Í bláu tunnuna má setja allan pappír og pappa. Hún er losuð á 20 daga fresti og í hana má allur pappír og pappi fara óflokkaður, s.s. dagblöð, umbúða pappi, bylgjupappi og fernur. Fjölmargir íbúar í Reykjavík hafa nú þegar stigið skrefið og fengið sér bláu tunnuna. Heimili sem fær sér bláu tunnuna getur minnkað umfang almenns heimilissorps um 25 – 30%. Það þýðir að heimili geta minnkað sorphirðukostnað sinn umtalsvert með því að panta losun á almennu heimilissorpi á 20 daga fresti í stað 10 daga frests eða fækkað ílátum fyrir almennt sorp í fjölbýli.

ENDURVINNSLUTUNNA FRÁ EINKAFYRIRTÆKI

Gámaþjónustan og Íslenska gámafélagið bjóða upp á endurvinnsluílát sem hægt er að setja í öll pappírsefni auk annarra endurvinnsluefna.

FLOKKA OG SKILA SJÁLFUR

Áfram verður hægt að fara sjálfur með endurvinnsluefnin á endurvinnslustöðvar Sorpu eða í grenndargáma. Reykjavíkurborg hyggst fjölga grenndarstöðvum fyrir endurvinnsluefni og fjölga losun þeirra.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.