Guðni: „Forsetinn hefur orðið að slá á fingur ríkisstjórnarinnar hvað eftir annað“

„Það er þrennt sem ógnar framtíð Íslendinga

Það er þrennt sem ógnar framtíð Íslendinga, að sögn Guðna Ágústssonar, fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins. „Í fyrsta lagi Samfylkingarandi sem hefur minnimáttarkennd og undirgefna alþjóðahyggju að leiðarljósi. Andi sem vill ekki sjálfstæði Íslands og berst með öllum tiltækum ráðum að koma okkur undir erlent vald, er á móti fullveldi landsins. Í öðru lagi ESB-andi sem er óskiljanlegur við núverandi aðstæður og minnir meir á trúarbrögð en vitræna umræðu. Í þriðja lagi Icesave-andi sem er viljinn til að Íslendingar borgi skuldir einkabanka og óreiðumanna. Vinstrimönnum hefur aldrei blöskrað að hengja skatta á sína verkamenn, það sjá allir nú,“skrifar Guðni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Sextán ár sanngjarnt að hætta

Guðni segir að margir hefðu talið að sextán ár Ólafs Ragnars Grímssonar væru góður tími og sanngjarnt að Ólafur hætti. Hinsvegar hafi bæði Guðni og fleiri talið að það skapaði hættu að Ólafur hætti í embætti. „[...] varðstaða hans skipti sköpum í Icesave, hann reis gegn hryðjuverkaárás Bretanna og snéri umræðunni við í Evrópu okkur í hag,“ segir Guðni og bætir við: „Hann vakti athygli á þessu níðingsverki í garð NATÓ-þjóðar þar sem vopnlaus friðelskandi þjóð var stimpluð glæpamenn af einu valdamesta ríki veraldar. Á meðan gengu forráðamenn ríkisstjórnarinnar ekki fram fyrir skjöldu, nánast breiddu yfir höfuðið. Og Samfylkingin óttaðist að aðildar viðræður um inngöngu í ESB færu út um þúfur.“

Þá segir Guðni einnig að það hafi verið „gunguháttur“ að slíta ekki stjórnmálasamstarfi við „ofbeldisríkið“ Bretland haustið 2008.

Þóra komst aldrei frá því að vera fulltrúi Icesave manna

Guðni segir að í kosningabaráttunni hafi Þóra Arnórsdóttir aldrei komist frá því að vera fulltrúi Icesave-manna og ESB-sinna sem kaus að láta ríkisstjórnina í friði með öll sín ætlunarverk. „Hún féll úr hreinum meirihluta í 35% fylgi með því að hún sjálf náði aldrei að þvo hendur sínar og hafði í kring um sig óða samfylkingarmenn sem sköðuðu framboð hennar,“ segir Guðni.

Hann segir ennfremur að orðið á götunni sé á þá leið að tapi Íslendingar dómsmálinu um Icesave fyrir EFTA dómstólnum þá ætli ríkisstjórnin að freista þess að keyra samninga enn í gegnum þingið. Nú ógni hinsvegar Ólafur Ragnar Grímsson þeirri stöðu.

ESB draugurinn lifir

„Enn berjast Össur og Jóhanna fyrir því að troða okkur inn í Evrópusambandið og hús evrunnar sem brennur og er að eyðileggja gömul menningarríki. Og Jóhanna hefur því miður Steingrím J. Sigfússon í bandi og óskaplega lætur hann draga sig lengi á asnaeyrunum. Hann er farinn að minna mig á annan stjórnmálaforingja sem dró flokk sinn á asnaeyrunum árum saman, flokk sem hafði sömu grundvallarstefnu og Vinstri-grænir í ESB málum,“ segir Guðni og segir að Samfylkingin hafi hagað málum á þann hátt að þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB samningin verði aðeins ráðgefandi. „Sem sé þjóðin á kannski ekki að eiga síðasta orðið í stærsta og afdrifaríkasta máli Íslandssögunnar á eftir Gamla Sáttmála 1262. “

Guðni segir Ólaf ekki vera neina puntudúkku og muni ekki leyfa slík vinnubrögð. Þá segir hann Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra ætla að koma stórum málum í gegn á hnefunum.

Kosinn af rökhyggju

„Forseta vorum er engin vorkunn að standa þessa vakt næstu fjögur árin. Hann er kosin af rökhyggju þeirra kjósenda sem treysta honum til að standa vörð um fullveldi landsins,“ segir Guðni og segir að Ólafur Ragnar tryggi varðstöðu og boði öryggi á erfiðum tímum. „Forsetinn hefur orðið að slá á fingur ríkisstjórnarinnar hvað eftir annað,“ segir Guðni og bætir við að lokum: „Hann hefur tekið sér stöðu með þjóðinni.“

Grein Guðna er að finna í Morgunblaðinu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.